Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006

saknaðarkveðjur

Ég sit hérna hálf grátandi yfir tölvunni þar sem ég er að skoða myndir af bekkjarmótinu. Ég hefði svo viljað vera með ykkur og hefði verið það ef ekki hafði verið fyrir þetta HELVÍTIS veður. Það er þó smá sárabót að sjá myndir af ykkur, sérstaklega þeim sem ég hef ekki séð í mörg ár. Þið eruð alveg jafn æðisleg og þegar þið voruð í skóla :) Mér finnst leiðinlegt hvað það voru fáir sem komust en ég vona þó að við gerum þetta fljótlega aftur og þá verðum við búin að panta gott veður :) Ég hlakka til að sjá ykkur og heyra frá ykkur hér á blogginu.

 

Kveðja Sólveig Arna


Nýjar myndir

Takk takk 

fyrir æðislegt partý.

Ég skemmti mér mjög vel Cool

ég er búin að setja inn nýjar myndir úr partýinu

kv. Bára.


Allt af gerst............... ég lofa

Heil og sæl

 

Ætlaði að setja inn myndir en gafst upp á því, vélin mín er bara aðeins og hæg fyrir þetta eða eitthvað. En Valgerður mín ég er með gítarinn þinn þú kannski villt fá hann aftur? Ég ætla líka að setja inn netföngin okkar, vonandi kemst ég í það á morgun en það er alltaf svo mikið að gera í skólanum og vinnunni að ég kemst því miður ekki yfir þetta allt í einu. Lofa að fara í þetta fljótlega.

 

Gaman að sjá ykkur öll

Bestu kveðjur Inga BJ ...... Ingibjörg Anna.


Takk fyrir frábæra skemmtun!!

Takk fyrir laugardaginn. Þetta var rosa stuð og mjög gaman að hitta ykkur aftur.

Gaman að sjá þessa skemmtilegu myndir W00t Talandi um myndir þá týndi ég myndavélinni minni. Þetta er lítil og nett Canon vél. Ég var með hana síðast í partýinu en hún varð nefnilega fljótlega batteríislaus. Það voru nokkrar myndir úr partýinu á kortinu. Hennar er sárt saknað. Frown Þið megið endilega láta mig vita ef þið hafið e-h hugmynd.

Takk annars fyrir frábært djamm.

Bestu kveðjur

Eva

 


Takk fyrir snilldar laugardag !

Vá hvað var gaman að hitta ykkur öll væri alveg til í að gera þetta oftar. Smile   Hefði samt verið gaman að sjá fleiri af okkur Wink   En allavega frábær dagur í alla staði og Ómar Þór takk fyrir geggjaða Limmóferð Kissing  Setti inn nokkrar myndir frá frábæru kvöldi.    Kv.  Anna Kristín

Takk fyrir frábæran dag..

Ég vildi bara þakka fyrir daginn í gær, þetta var frábær dagur og gaman að hitta alla aftur, fyndið að suma hefur maður ekki hitt i mörg ár en samt er bara eins og við höfum hist síðast í gær,, Frábært.

Það var frekar leiðinlegt að fleiri gátu ekki mætt,   Þið misstuð að miklu Tounge

 Endilega setja inn myndir ..

Hlakka strax til næsta hittings..Shocking

Er einhver sem býður sig fram í næstu nefnd??? Það eru komnir 2, stína og Jórunn,  flott ef einhverjir 2 aðrir bjóða sig fram Cool

 

Kveðja Hulda 


Takk fyrir skemmtilegt kvöld!

Mikið var nú gaman að hitta ykkur aftur, sum ykkar held ég að ég hafi ekki séð síðan í gaggó...

Það væri frábært að fá sendar myndir úr partýinu eða hreinlega að setja þær inn á síðuna. Hver veit nema maður skanni inn nokkrar gamlar myndir og setji þær hér inn....

Ég óska sérstaklega eftir myndinni af Ragga með skeiðarnar á enninu LoL

Bestu kveðjur

Ólína 


Kæri árgangur 77

Árgangur 77

Hæ ég vildi bara kasta kveðju fyrir daginn, vona að þetta verði alveg magnað game hjá ykkur.  Það verður vonandi stemmari, veit alla vegana að mattinn ætlar að mæta og gera garðinn frægan.  Hann verður minn fulltrúi.  En Það væri mjög gaman að fá myndir af ykkur, svo lika alltaf gaman að vita hvað þið eruð búinn að kúpla út mörgum börnum.    En ég vona að þetta verði hrikalega gaman, veit að ef Jón Brynjar mætir þá klikkar þetta ekki.  

Kær kveðja Óli Barðdal

 

p.s. Flott síða Bára!!!!!


Á morgun verður það

Heil og sæl

 Nú er komið að því hittingur á morgun, alt að gerast. Ég er að vísu ekki að sjá að margir af landsbyggðinni komist á þennann fögnuð. En það verður þá bara að vera næst.

En ég hlakka mikið til að sjá börnin ykkar hér inní á myndasíðunni. Kannski við barnlausu ættum að setja inn mynd af kettinum, hundinum eða áhugamálinu hér inn í sér möppu. Ætla að vinna í því að búa til albúm handa okkur sem viljum setja eitthvað annað.

Hlakka til að sjá ykkur á morgun, erum við ekki enn on??

 Bless í bili.

P.S á ekki einhver flotta mynd af skólanum heima til þess að setja í staðinn fyrir hundinn eða eitthvað annað. Eða viljið þið kannski hafa kvutta þarna?


Takk fyrir

Takk fyrir móttökurnar á síðunni.

Mér finnst þetta alveg frábært að geta sest niður og skóða myndir og lesið hvað er að gerast hjá okkur öllum.  Mig hlakkar svo til að sjá ykkur öll á laugardaginn.

það verða allir i stuði. ekki satt Grin  svo er bara að mæta i síðkjól og jakkafötum Happy  eða hvað ??

kv. Bára


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband