Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006

Afmælisbarn

Sólveig Arna á afmæli í dag. Til hamingju með það!!!


SIÐASTA ÚTKALL...

Jæja gott fólk, nuna styttist í stóru stundina, og síðasti séns að borga og láta vita.....

 

kv Hulda 


3 dagar!!!!

Jæja þá eru 3 dagar til stefnu...

Bára takk kærlega fyrir þetta framtak, hafði oft hugsað um þetta en aldrei komið því í verk.  Ótrúlega sniðugt að halda úti svona bloggsíðu ef fólk er duglegt að skoða og setja inn.

Ég er öll spennt fyrir laugardeginum og hlakka bara ótrúlega mikið til.

Eftir kirkjuna eru þið velkomin að koma til mín áður en farið verður í salinn - ætla að halda smá partý ef áhugi er fyrir hendi.

Endilega sendið mér tölvupóst elistef@simnet.is og látið mig vita ef þið hafið áhuga og já til að fá heimilisfangið.

Kveðja Elísabet


Halló halló

Allir saman. Gaman að við skulum vera komin með síðu.

Ég stefni á að mæta á bekkjarmótið á laugardaginn, en hverjir ætla að mæta?

Hlakka til að hitta ykkur sem flest.

Jæja sýnum svo lit og látum vita af okkur hérna.

Kærar kveðjur

Gunna Stína


Flott síða.

Heil og sæl.

Rosalega gaman að sjá hvað við séum samheldin, meira segja komin með sameiginlegt bloggSmile. Alltaf gaman að vita hvað þið hin eruð að gera.W00t Ég er nú yfirlett ekki að gera neitt. (nei djók)

 Allavega sendi ég ekki myndir að börnunum mínum hehe þið sjáið bara um það fyrir okkur hin sem virðumst ekki geta þetta. Grin Kannski ég setji inn eina og eina mynd af útlöndum í staðinn.

Kveðja Inga Bj.

 

 


Frábært framtak..

Þetta er frábært hja þér, hlakka til að hitta ykkur á laugardaginn,,.

Kveðja Hulda 


Við erum að tala um n.k laugardag

Það er Dómkirkjan kl:16.00 á laugardaginn, og endilega að mæta með gömul albúm, minningarbækur eða eitthvað þess háttar

Frábært framtak! Bára, þú ert snillingur

Þetta er náttúrulega bara snilld, og mér er það mikill heiður að vera sú fyrsta sem að kíki á síðuna. Ég hlakka mikið til að hitta ykkur þann 11.nóv. 

Sjáumst hress

Valgerður Erlings


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband